Kærleikurinn – einkenni Guðs barna
1 Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn á himnum hefur sýnt okkur, að við megum kallast hans börn og það erum við sannarlega! En fáir þekkja Guð og því skilur fólk ekki að við erum börnin hans. 2 Kæru vinir, nú erum við Guðs börn, einmitt núna, og við getum ekki ímyndað okkur hvað við eigum í vændum. Eitt vitum við þó: Þegar hann kemur verðum við eins og hann, því að þá munum við sjá hann eins og hann raunverulega er.