16 Við vitum að Guð elskar okkur – við höfum fundið kærleika hans! Við vitum það einnig vegna þess að við trúum orðum hans, að hann elski okkur. Guð er kærleikur og sá sem sýnir kærleika í verki, lifir í Guði og Guð í honum. 17 Ef við lifum í Kristi, vex kærleikur okkar og nær fullkomnun og þá verðum við okkur ekki til skammar eða háðungar á degi dómsins. Þá getum við glöð og hugrökk horfst í augu við hann, því að hann elskar okkur og við elskum hann.
18 Okkur er óþarft að óttast þann, sem elskar okkur, því að hans fullkomni kærleikur rekur burt allan ótta. Ef við erum hrædd, þá er það vegna þess að við höldum að Guð muni refsa okkur – við erum ekki fyllilega sannfærð um að hann elski okkur.