6-8 Við vitum að Jesús er sonur Guðs, því að svo sagði rödd Guðs, sem hljómaði frá himnum, þegar hann var skírður og er hann stóð andspænis dauðanum. Sama segir heilagur andi, andi sannleikans. Þar með höfum við þrjú vitni: Rödd heilags anda í hjörtum okkar, röddina af himni þegar Jesús var skírður og röddina sem hljómaði er hann gekk í dauðann. Vitnin þrjú – andinn, vatnið og blóðið – eru öll sammála. „Jesús Kristur er sonur Guðs."