13 Verið því allsgáð og horfið örugg fram til endurkomu Jesú Krists. Þá munuð þið fá að njóta blessunar Guðs í ríkari mæli en nokkru sinni fyrr.
14 Hlýðið Guði, því að þið eruð börn hans. Gætið þess að lenda ekki aftur í sama farinu – ykkar gamla líferni – þegar þið lögðuð stund á hið illa vegna þess að þið þekktuð ekkert betra. 15 Verið nú heilög í öllu sem þið gerið, rétt eins og Drottinn, sem kallaði ykkur í barnahópinn sinn. 16 Það var hann sem sagði: „Verið heilög, því að ég er heilagur."