Pular para o conteúdo
Publicidade

1 Pedro 3

Reglur fyrir hamingjusamt heimili

1 Eiginkonur, hlýðið eiginmönnum ykkar. Það skuluð þið gera, jafnvel þótt þeir láti sér fátt um finnast þegar þið segið þeim frá Drottni, 2 því síðar meir kunna þeir ávinnast vegna vandaðs lífernis ykkar.

3 Hugsið ekki of mikið um skartgripi, hárgreiðslu og glæsileg föt. 4 Fegurð ykkar á vera innri fegurð hjartans, en hún birtist í hógværri og blíðri lund, sem er dýrmæt í augum Guðs. 5 Það var slík fegurð sem einkenndi heilagar konur fyrri alda. Þær treystu Guði og hlýddu eiginmönnum sínum.

6 Sara er dæmi um slíka konu. Hún hlýddi eiginmanni sínum Abraham og bar virðingu fyrir honum sem húsbónda heimilisins. Ef þið farið eins , fetið þið í fótspor hennar eins og þið væruð dætur hennar og gerið það sem rétt er. Þá eigið þið ekki á hættu reita menn ykkar til reiði.

Veja também