Publicidade

1 Pedro 3

Reglur fyrir hamingjusamt heimili

1 Eiginkonur, hlýðið eiginmönnum ykkar. Það skuluð þið gera, jafnvel þótt þeir láti sér fátt um finnast þegar þið segið þeim frá Drottni, 2 því síðar meir kunna þeir ávinnast vegna vandaðs lífernis ykkar.

3 Hugsið ekki of mikið um skartgripi, hárgreiðslu og glæsileg föt. 4 Fegurð ykkar á vera innri fegurð hjartans, en hún birtist í hógværri og blíðri lund, sem er dýrmæt í augum Guðs. 5 Það var slík fegurð sem einkenndi heilagar konur fyrri alda. Þær treystu Guði og hlýddu eiginmönnum sínum.

6 Sara er dæmi um slíka konu. Hún hlýddi eiginmanni sínum Abraham og bar virðingu fyrir honum sem húsbónda heimilisins. Ef þið farið eins , fetið þið í fótspor hennar eins og þið væruð dætur hennar og gerið það sem rétt er. Þá eigið þið ekki á hættu reita menn ykkar til reiði.

7 Eiginmenn, hugsið vel um konur ykkar! Sjáið þeim fyrir þörfum þeirra og berið virðingu fyrir þeim sem hinu veikara kyni. Munið þið og konur ykkar meðtakið sameiginlega blessun Guðs. Ef þið komið fram við þær öðruvísi en ykkur ber, er hætt við bænir ykkar beri engan árangur.

8 Hér eru svo nokkur orð til ykkar allra: Verið sem ein stór og hamingjusöm fjölskylda. Sýnið hvert öðru fyllstu tillitssemi, elskið hvert annað af öllu hjarta og verið auðmjúk. 9 Gjaldið ekki illt fyrir illt. Svarið ekki í sömu mynt, ef hreytt er í ykkur ónotum, biðjið heldur Guð hjálpa þeim sem í hlut á, því við eigum vera góð við aðra og þá mun Guð blessa okkur.

10 Gætið tungu ykkar, ef þið viljið lifa hamingjusömu og góðu lífi, og forðist öll ósannindi. 11 Forðist hið illa, en leggið stund á hið góða. Ástundið frið og kappkostið varðveita hann, svo þið missið ekki af honum! 12 Drottinn verndar börnin sín og hlustar á bænir þeirra, en hann snýr augliti sínu frá þeim sem illt gera.

13 Hver mun gera ykkur illt, ef þið leggið ykkur fram um gera gott? 14 Jafnvel þótt ykkur gert illt eruð þið gæfusöm, því Guð mun launa ykkur. 15 Takið öllu með og stillingu og treystið Drottni, Jesú Kristi. Ef einhver spyr ykkur hvers vegna þið gerið það, verið þá reiðubúin svara með hógværð og sýnið virðingu þeim sem spyr.

16 Gerið það sem rétt er, en tali menn illa um ykkur þrátt fyrir það og kalli ykkur illum nöfnum, þá verða þeir aðeins sjálfum sér til minnkunar fyrir slíkt, því þið hafið ekkert rangt aðhafst. 17 Munið ætli Guð ykkur þjást, er betra líða fyrir hafa gert rétt, heldur en rangt!

Gildi þjáningarinnar

18 Kristur varð einnig þjást. Hann eitt sinn fyrir syndir okkar allra. Sjálfur var hann algjörlega saklaus og hafði aldrei drýgt neina synd, en hann eigi síður fyrir okkur, seka syndarana, svo hann gæti leitt okkur heilu og höldnu heim til Guðs. Líkami Jesú , en andi hans lifði áfram. 19 Þannig fór hann til andanna sem voru í varðhaldi, og predikaði fyrir þeim. 20 Þetta voru andar þeirra, sem fyrir löngu á dögum Nóa höfðu óhlýðnast Guði, enda þótt hann biði þeirra með mikilli þolinmæði meðan Nói var smíða örkina. Í örkinni björguðust síðan aðeins átta manns úr flóðinu hræðilega. 21 Þetta er einmitt fyrirmynd skírnarinnar, sem frelsar ykkur. Í skírninni sýnum við fram á frelsi okkar frá dauða og dómi fyrir upprisu Krists, ekki vegna þess við höfum þvegið af okkur óhreinindi í vatninu, heldur snúum við okkur í henni til Guðs og biðjum hann um hreinsa hjörtu okkar af syndinni. 22 er Kristur á himnum og situr þar í heiðurssæti við hlið Guðs föður og allir englar og kraftar himnanna lúta honum og hlýða.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-