Publicidade

1 Pedro 4

1 Fyrst Kristur þurfti líða og þjást, þá skuluð þið einnig hafa sama hugarfar og vera reiðubúin þjást. Þjáningin veldur því syndin missir mátt sinn 2 og þá hættið þið sækjast eftir hinu illa, en takið þrá hlýða Guðs vilja. 3 Tímann sem liðinn er notuðuð þið til ills og er nóg komið af slíku. Þið voruð líka heiðingjar og höfðuð nautn af kynsvalli, drykkjuskap, siðlausum samkvæmum, skurðgoðadýrkun og öðrum hræðilegum syndum.

4 Gamla vini ykkar mun reka í rogastans, þegar þeir sjá þið hafið misst áhugann á taka þátt í þessum syndum þeirra. Þeir munu senda ykkur tóninn og hæðast ykkur. 5 En minnist þess þá þeir munu verða standa reikningsskap gerða sinna augliti til auglitis við hann sem er dómari allra manna, lifandi og dauðra. 6 Gleðifréttirnar voru fluttar þeim sem dauðir voru, til þess þeir gætu lifað í andanum í samræmi við vilja Guðs, enda þótt líkömum þeirra eins og reyndar líkömum allra manna hafi verið refsað með dauða.

Kærleikurinn hylur margar yfirsjónir

7 Endir veraldar er í nánd. Verið því vakandi í öllu og staðföst í bæninni. 8 En umfram allt berið brennandi kærleika hvert til annars, því kærleikurinn getur breitt yfir margt sem miður fer. 9 Opnið heimili ykkar með gleði fyrir þeim sem þarf á matarbita eða næturskjóli halda.

10 Guð hefur gefið ykkur hverju fyrir sig vissar gjafir. Gætið þess nota þær hvert öðru til hjálpar og skila þar með blessun Guðs áfram til annarra. 11 Hafir þú fengið köllun til predika, predikaðu þá eins og það væri sjálfur Guð sem talaði í gegnum þig. Hafir þú köllun til hjálpa öðrum, skaltu gera það af heilum hug og af þeim krafti sem Guð gefur þér, svo hann hljóti heiðurinn vegna Jesú Krists. Hans er mátturinn og dýrðin eilífu. Amen.

12 Kæru vinir, látið það hvorki rugla ykkur hræða, er þið mætið þeim raunum sem framundan eru, því þær eiga ekki koma ykkur á óvart. 13 Verið þess í stað gagntekin gleði, því með þessum raunum fáið þið taka þátt í þjáningum Krists. Gleði ykkar mun verða mikil er þið, þeim loknum, eignist hlutdeild í dýrð hans, sem opinberast á degi endurkomunnar.

14 Gleðjist þegar menn formæla ykkur og smána fyrir trúna, því heilagur andi hvílir yfir ykkur í dýrð sinni. 15 Látið mig ekki þurfa fréttir um ykkur líði illa vegna þess þið hafið framið morð eða stolið, eða þá þið hafið orðið til óþæginda vegna forvitni um það, sem ykkur kemur ekki við. 16 Það er hins vegar engin skömm þurfa líða fyrir vera kristinn. Lofum Guð fyrir þau forréttindi tilheyra fjölskyldu Krists og fyrir bera hans undursamlega nafn og vera kölluð kristin!

17 Stund dómsins er runnin upp og hann hefst á fólki Guðs. Ef við, sem kristin erum, hljótum dóm, hlýtur eitthvað óttalegt bíða þeirra sem aldrei hafa viljað trúa á Drottin. 18 Hvaða möguleika hafa guðleysingjarnir, ef hinir réttlátu bjargast naumlega?

19 Sem sagt, ef þið þjáist vilja Guðs; felið þá málefni ykkar Guði skapara ykkar og haldið áfram gera hið góða. Guð er trúr og hann mun ekki bregðast ykkur.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-