Nokkur orð til leiðtoganna
1 Prestar og leiðtogar, nú tala ég til ykkar sem samstarfsmaður. Ég sá Krist með eigin augum deyja á krossinum og ég mun einnig fá hlutdeild í dýrð hans og vegsemd þegar hann kemur aftur.
Kæru samstarfsmenn, ég minni ykkur á 2 að annast hjörð Guðs. Gætið hennar af fúsleika, en ekki með nauðung; ekki launanna vegna, heldur vegna þess að ykkur er umhugað að þjóna Drottni. 3 Stjórnið ekki söfnuðinum með harðri hendi, heldur gangið á undan með góðu fordæmi