2 að annast hjörð Guðs. Gætið hennar af fúsleika, en ekki með nauðung; ekki launanna vegna, heldur vegna þess að ykkur er umhugað að þjóna Drottni. 3 Stjórnið ekki söfnuðinum með harðri hendi, heldur gangið á undan með góðu fordæmi 4 og þegar Jesús Kristur – yfirhirðirinn – kemur, mun hann launa ykkur og launin verða hlutdeild í hans eilífu dýrð.
5 Ungu menn, verið leiðtogum ykkar undirgefnir. Þjónið hver öðrum í auðmýkt, því að Guð er andstæðingur dramblátra en blessar og hjálpar auðmjúkum.