Stattu í gegn röngum kenningum
3,4 Ég endurtek það sem ég sagði áður en ég fór frá Makedóníu: Vertu kyrr í Efesus og þaggaðu niður í þeim mönnum sem fara með rangar kenningar. Reyndu að binda enda á þessar goðsagnir og helgisögur og þær hugmyndir þeirra, að hægt sé að frelsast með því að vinna sér hylli hjá endalausri röð engla sem leiði menn upp til Guðs. Þetta eru fáránlegar hugmyndir, sem aðeins vekja þrætur í stað þess að benda fólki á leið trúarinnar, eins og Guð ætlaðist til.