Publicidade

1 Timóteo 4

Um villukenningar

1 Heilagur andi segir skýrt og greinilega á síðustu tímum muni sumir snúa baki við Kristi, hlýða lyga-öndum og fylgja kenningum sem komnar eru frá Satani. 2 Þessir kennimenn munu ljúga án þess blikna, því þeir hafa svæft samvisku sína. 3 Þeir munu banna fólki ganga í hjónaband og segja það rangt borða kjöt, þótt hvort tveggja frá Guði. Þetta tvennt er vissulega ætlað trúuðu fólki sem þekkir sannleikann. Það njóti þessara gjafa og þakki Guði. 4 Allt sem Guð hefur skapað er gott og við getum neytt þess með gleði eftir hafa þakkað Guði. 5 Það helgast af Guðs orði og bæn.

6 Ef þú brýnir þetta fyrir hinum trúuðu, ert þú góður þjónn Jesú Krists, sem lifir í trú á hina réttu kenningu, sem þú hefur fylgt.

7 Eyddu ekki tíma í deilur um fánýt efni eða kjánalegar goðsagnir og helgisögur. Kappkostaðu miklu fremur viðhalda andlegri hæfni þinni. 8 Líkamsþjálfun getur vísu verið gagnleg en iðkun trúarlífsins er miklu þýðingarmeiri og er þér til hressingar á allan hátt. Leggðu því stund á andlega þjálfun og æfðu þig í því verða heilsteyptari í trúnni. Það er nytsamlegt, bæði í þessu lífi og einnig í hinu komandi. 9,10 Þetta er satt og eftir þessu ættu allir fara. Við leggjum hart okkur og þolum miklar raunir í viðleitninni til fólk til trúa þessu, því við höfum sett von okkar á hinn lifandi Guð, sem fyrir alla, en þó sérstaklega þá sem tekið hafa við hjálpræði hans.

11 Þetta skaltu kenna og gættu þess vel allir taki námið alvarlega. 12 Láttu engan líta niður á þig, vegna þess hve ungur þú ert, en vertu fyrirmynd trúaðra og farðu sjálfur eftir því sem þú kennir og þá munu þeir einnig gera það. Vertu þeim líka til fyrirmyndar í kærleika, trú og hreinleika. 13 Ég bið þig lesa og útskýra orð Guðs af kostgæfni fyrir söfnuðinum og boða það þangað til ég kem.

Notaðu hæfileikana sem Guð hefur gefið þér

14 Gættu þess vel nota hæfileikana sem Guð gaf þér, þegar leiðtogar safnaðarins lögðu hendur yfir þig og fluttu þér spádóm frá Guði. 15 Notaðu þessa hæfileika og varpaðu þér út í starfið, svo allir geti séð hversu þér hefur farið fram. 16 Hafðu gát á sjálfum þér og því sem þú kennir. Haltu fast við sannleikann og þá mun Guð bæði gera þig hólpinn og áheyrendur þína.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-