7 Eyddu ekki tíma í deilur um fánýt efni eða kjánalegar goðsagnir og helgisögur. Kappkostaðu miklu fremur að viðhalda andlegri hæfni þinni. 8 Líkamsþjálfun getur að vísu verið gagnleg en iðkun trúarlífsins er miklu þýðingarmeiri og er þér til hressingar á allan hátt. Leggðu því stund á andlega þjálfun og æfðu þig í því að verða heilsteyptari í trúnni. Það er nytsamlegt, bæði nú í þessu lífi og einnig í hinu komandi.