Publicidade

1 Tessalonicenses 3

Góðar fréttir frá Tímóteusi

1 Þegar ég gat ekki afborið þetta lengur, ákvað ég verða eftir í Aþenu. 2,3 Ég sendi Tímóteus, bróður okkar og þjón Guðs, til ykkar, til styrkja ykkur og uppörva í trúnni og koma í veg fyrir þið misstuð kjarkinn vegna allra erfiðleikanna sem þið mættuð. Auðvitað vitið þið slíkir erfiðleikar eru þáttur í áætlun Guðs með okkur kristna menn. 4 Meðan við vorum hjá ykkur, þá sögðum við ykkur þið mynduð brátt mæta ofsóknum og það stóð heima.

5 En sem sagt, þegar ég þoldi ekki lengur þessa óvissu, þá sendi ég Tímóteus til komast því hvort þið væruð staðföst í trúnni. Ég var hræddur um Satan hefði ef til vill fellt ykkur og erfiði okkar væri allt unnið fyrir gýg. 6 En er Tímóteus nýkominn aftur með þær gleðifréttir, trú ykkar sterkari og kærleikurinn dýpri en nokkru sinni. Hann sagði einnig þið hefðuð minnst heimsóknar okkar með gleði og þráð jafn heitt og við við gætum hist á .

7 Kæru vinir, þessar fréttir, þið séuð stöðug í Drottni, hafa huggað okkur stórlega í þeim erfiðleikum og þjáningum sem við verðum þola hér. 8 Við getum þolað hvað sem er, svo framarlega sem við vitum þið séuð staðföst í trúnni á Jesú Krist.

9 Hvernig getum við nógsamlega þakkað Guði fyrir gleðina sem þið hafið veitt okkur í samfélaginu við Drottin? 10 Við biðjum Guð þess dag og nótt við fáum heimsækja ykkur á , svo við getum aukið enn meir við trú ykkar. 11 Ég bið þess sjálfur Guð, faðir okkar, og Drottinn Jesús, opni okkur leið til ykkar á . 12 Auk þess bið ég Drottin kærleikur ykkar hvers til annars og til allra, aukist æ meir, eins og kærleikurinn sem við berum til ykkar. 13 Þannig mun Guð, faðir okkar, styrkja ykkur og helga, og hreinsa hjörtu ykkar af allri synd, svo þið getið staðið hrein frammi fyrir honum þann dag, er Drottinn Jesús Kristur kemur aftur ásamt öllum þeim er honum tilheyra.

Veja também

1 Tessalonicenses
Ver todos os capítulos de 1 Tessalonicenses
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-07-05_19-25-13-