Hvað gerist þegar kristinn maður deyr?
13 Kæru vinir, nú langar mig að segja ykkur hvað verður um þann sem kristinn er, eftir að hann deyr, svo að þið séuð ekki kvíðafull eins og þeir sem ekki hafa tekið á móti hjálpræði Guðs. 14 Fyrst við trúum því að Jesús hafi dáið og risið upp, þá getum við einnig treyst því að þegar hann kemur aftur, þá muni Guð vekja til lífs alla þá sem dáið hafa í trú á hann. 15 Það sem ég nú segi byggir á orðum Drottins. Við sem verðum á lífi þegar Drottinn kemur, munum ekki rísa upp til fundar við hann á undan þeim sem þegar eru dánir.
16 Þegar kall erkiengilsins hljómar og básúna Guðs gellur, þá mun Drottinn stíga niður af himni og kristnir menn rísa upp til fundar við hann – fyrst hinir dánu, 17 en síðan við, sem þá verðum á lífi. Við verðum hrifin upp á skýjum ásamt þeim, til að vera með Drottni um alla eilífð. 18 Huggið og uppörvið hvert annað með þessum orðum.