Publicidade

1 Tessalonicenses 5

1 Hvenær verður þetta? Reyndar er óþarfi fyrir mig ræða það, kæru vinir, 2 því ykkur er sjálfum ljóst það veit enginn. Dagur Drottins kemur fyrirvaralaust eins og þjófur um nótt. 3 Fólk segir: er friður og og allt í besta lagi," en þá mun skelfingin dynja yfir, eins og fæðingarhríðir hjá konu sem er því komin ala barn. Fólk þetta mun ekki sjá neina undankomuleið hvergi mun skjól finna.

4 Kæru vinir, ég veit ykkur er þetta ljóst og þegar dagur Drottins kemur, kemur hann ykkur ekki í opna skjöldu eins og óvinur, 5 því öll eruð þið börn ljóssins og börn dagsins. Þið heyrið ekki nóttunni til myrkrinu. 6 Verið því allsgáð og sofið ekki á verðinum eins og sumir. Vakið og væntið komu Drottins! 7 Nóttina nota menn til svefns og sumir til drekka sig fulla, 8 en við, sem lifum í ljósinu skulum vera allsgáð, vernduð brynju trúar og kærleika og með hjálm hjálpræðisins á höfði. 9 Guð hefur ekki kallað okkur til refsingar, 10 heldur til eilífs lífs með sér, hvort sem við verðum lífs eða liðin þann dag er Drottinn kemur aftur. 11 Uppörvið því hvert annað og hjálpist , hér eftir sem hingað til.

Ýmsar áminningar

12 Kæru vinir, sýnið leiðtogum safnaðar ykkar tilhlýðilega virðingu. Þeir leggja hart sér ykkar vegna og vara ykkur við öllu því sem rangt er. 13 Hugsið vel til þeirra og berið umhyggju fyrir þeim, því þeir gera sitt besta til hjálpa ykkur. Haldið svo frið hvert við annað.

14 Kæru vinir, áminnið þá sem latir eru og uppörvið þá sem kjarklitlir eru. Sýnið nærgætni og umhyggjusemi þeim sem viðkvæmir eru og verið þolinmóð hvert við annað. 15 Gætið þess enginn gjaldi illt fyrir illt, en reynið í hvívetna gera hvert öðru gott og einnig þeim sem ekki eru kristnir. 16 Verið ávallt glöð. 17 Verið stöðug í bæninni. 18 Þakkið Guði í öllum kringumstæðum, því það er vilji Guðs með þá sem Kristi tilheyra.

19 Hindrið ekki heilagan anda 20 með því ávíta þá sem koma með spádóm frá Guði, 21 en sannprófið það sem þeir segja í ljósi Guðs orðs, til ganga úr skugga um hvort það rétt, og ef svo er, þá takið við því. 22 Haldið ykkur frá öllu sem illt er. 23 Ég bið þess Guð friðarins hreinsi ykkur algjörlega og varðveiti líkama ykkar, sál og anda, allt til þess dags er Drottinn Jesús Kristur kemur aftur. 24 Guð, sem kallaði ykkur til verða börn sín, mun koma þessu til leiðar, eins og hann hefur lofað.

25 Kæru vinir, biðjið fyrir okkur. 26 Skilið kveðju frá mér til allra bræðranna. 27 Ég bið þess og krefst í nafni Drottins þið látið lesa þetta bréf upp fyrir öllum söfnuðinum. 28 Drottinn blessi ykkur ríkulega, eitt og sérhvert.

Páll

Veja também

Publicidade
1 Tessalonicenses
Ver todos os capítulos de 1 Tessalonicenses
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-