1 Hvenær verður þetta? Reyndar er óþarfi fyrir mig að ræða það, kæru vinir, 2 því að ykkur er sjálfum ljóst að það veit enginn. Dagur Drottins kemur fyrirvaralaust – eins og þjófur um nótt. 3 Fólk segir: „Nú er friður og ró og allt í besta lagi," – en þá mun skelfingin dynja yfir, eins og fæðingarhríðir hjá konu sem er að því komin að ala barn. Fólk þetta mun ekki sjá neina undankomuleið – hvergi mun skjól að finna.
4 Kæru vinir, ég veit að ykkur er þetta ljóst og þegar dagur Drottins kemur, kemur hann ykkur ekki í opna skjöldu eins og óvinur, 5 því að öll eruð þið börn ljóssins og börn dagsins. Þið heyrið ekki nóttunni til né myrkrinu.