20 Hann framkvæmir og uppfyllir öll loforð Guðs, hversu mörg sem þau eru. Við höfum sagt frá trúfesti hans og heiðrað nafn hans. 21 Þessi Guð hefur gert ykkur, ásamt mér, að traustum kristnum mönnum og valið okkur til að útbreiða fagnaðarerindið. 22 Hann hefur sett á okkur innsigli sitt – tákn eignarréttar síns – og blásið okkur heilögum anda í brjóst, sem tryggingu þess að við tilheyrum honum. Þetta er aðeins upphaf alls þess sem hann ætlar að gefa okkur.