Guð hefur hjálpað okkur
3,4 Lofaður sé Guð, faðir Drottins Jesú Krists. Hann er uppspretta allrar miskunnar og sá sem huggar okkur og styrkir í þrengingum og mótlæti. Þess vegna getum við, sem höfum hlotið huggun hans og hjálp, huggað og uppörvað aðra, sem eiga í erfiðleikum. 5 Það er öruggt, að því meiri þjáningar sem við þolum vegna Krists, því ríkulegar mun hann hugga og uppörva. 6,7 Það hefur kostað okkur miklar þrengingar að flytja ykkur huggun og hjálpræði Guðs. En Guð hefur gefið okkur nýjan styrk í erfiðleikunum. Það hefur hann einnig gert ykkar vegna, því að hann vill nota reynslu okkar, ykkur til huggunar, þegar þið lendið í sams konar raunum. Hann mun veita ykkur styrk svo að þið gefist ekki upp.