Publicidade

2 Coríntios 1

1 Kæru vinir.

Þetta bréf er frá mér, Páli, sem Guð sendi sem boðbera Jesú Krists, og frá okkar kæra bróður, Tímóteusi. Bréfið er til allra kristinna í Korintu og Grikklandi öllu. 2 Guð faðir og Drottinn Jesús Kristur blessi ykkur með náð sinni og friði.

Guð hefur hjálpað okkur

3,4 Lofaður Guð, faðir Drottins Jesú Krists. Hann er uppspretta allrar miskunnar og sem huggar okkur og styrkir í þrengingum og mótlæti. Þess vegna getum við, sem höfum hlotið huggun hans og hjálp, huggað og uppörvað aðra, sem eiga í erfiðleikum. 5 Það er öruggt, því meiri þjáningar sem við þolum vegna Krists, því ríkulegar mun hann hugga og uppörva. 6,7 Það hefur kostað okkur miklar þrengingar flytja ykkur huggun og hjálpræði Guðs. En Guð hefur gefið okkur nýjan styrk í erfiðleikunum. Það hefur hann einnig gert ykkar vegna, því hann vill nota reynslu okkar, ykkur til huggunar, þegar þið lendið í sams konar raunum. Hann mun veita ykkur styrk svo þið gefist ekki upp.

8 Kæru vinir, ég álít rétt þið fáið vita um allar þær þrengingar sem við urðum þola í Litlu-Asíu. Við vorum því komnir gefast upp og óttuðumst það væri úti um okkur. 9 Okkur fannst við vera dauðans matur, sáum enga undankomuleið. En þetta varð til góðs, því þá lögðum við allt í hendur Guðs, hans sem einn gat hjálpað og getur jafnvel lífgað hina dauðu. 10 Hann bjargaði okkur úr klóm dauðans og við trúum því hann muni gera það á . 11 En þið verðið einnig hjálpa okkur með fyrirbæn og þá munuð þið hafa ástæðu til þakka og lofa Guð, þegar þið sjáið undursamlegt svar hans við bænum ykkar.

12 Okkur finnst gott geta sagt í fullkominni hreinskilni, í öllu okkar starfi höfum við gert það eitt sem rétt var og treyst á hjálp Drottins, en ekki eigin hæfileika. Þetta á sérstaklega við um framkomu okkar við ykkur.

13,14 Bréf mín hafa verið skrifuð í einlægni og hreinskilni þar er ekkert hægt lesa á milli lína! Ég vona þið verðið hreykin af mér, þegar þið kynnist mér betur, á sama hátt og ég verð hreykinn af ykkur á endurkomudegi Drottins Jesú.

15,16 Ég hafði ákveðið koma við og hitta ykkur á leið minni til og frá Makedóníu, vegna þess ég var viss um trúnað ykkar og skilning. Þannig hefði ég orðið ykkur til tvöfaldrar blessunar og þið getað aðstoðað mig við förina til Júdeu.

Hvað tefur mig?

17 , en hvers vegna breyttirðu áætlun þinni?" gætuð þið spurt. Hafði ég þá ekki enn tekið ákvörðun? Er ég ef til vill eins og sumir sem segja , en meina nei. 18 Nei, alls ekki! Slíkur maður er ég ekki, það er eins víst og Guð er sannorður. Þegar ég segi , þá meina ég .

19 Við þrír Tímóteus, Silvanus og ég höfum sagt ykkur frá Jesú Kristi syni Guðs. Hann er ekki einn þeirra sem segja þegar þeir meina nei. Hann stendur við orð sín. 20 Hann framkvæmir og uppfyllir öll loforð Guðs, hversu mörg sem þau eru. Við höfum sagt frá trúfesti hans og heiðrað nafn hans. 21 Þessi Guð hefur gert ykkur, ásamt mér, traustum kristnum mönnum og valið okkur til útbreiða fagnaðarerindið. 22 Hann hefur sett á okkur innsigli sitt tákn eignarréttar síns og blásið okkur heilögum anda í brjóst, sem tryggingu þess við tilheyrum honum. Þetta er aðeins upphaf alls þess sem hann ætlar gefa okkur.

23 Ég kalla Guð til vitnis gegn mér, ef það sem ég segi er ekki sannleikanum samkvæmt. Ástæðan fyrir því ég hef enn ekki komið til ykkar er , ég vildi hlífa ykkur við hörðum áminningum. 24 En þótt trú ykkar styrkist ekki við komu mína, því hún er þegar orðin sterk, þá langar mig samt gera eitthvað til gleðja ykkur. Því ég vil þið séuð glöð, en ekki döpur.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-