23 Þeir halda því fram að þeir þjóni Kristi. Ég hef þjónað honum betur en þeir allir. (Nú tala ég eins og vitfirringur!) Ég hef lagt á mig meira erfiði en þeir, verið oftar í fangelsi, verið húðstrýktur mörgum sinnum og horfst í augu við dauðann hvað eftir annað. 24 Fimm sinnum létu Gyðingar húðstrýkja mig, þrjátíu og níu högg í hvert sinn. Það var hræðilegt. 25 Þrisvar hef ég verið barinn með prikum. Eitt sinn grýttur, þrisvar hef ég liðið skipbrot og eitt skiptið var ég sólarhring í sjó. 26 Það er mörg leiðin og erfið sem ég hef orðið að ganga. Oft hef ég komist í hann krappan. Ég hef þurft að vaða vatnsmiklar ár. Ræningjar hafa verið á leið minni og lent hef ég í kasti við landa mína Gyðinga jafnt sem heiðingja. Margsinnis hef ég verið í lífshættu. Víða í borgum hef ég verið umkringdur af æstum múg. 27 Ég hef verið útslitinn, sárþjáður, og margar andvökunæturnar hef ég átt. Oft hef ég þurft að þola hungur og þorsta, verið klæðlítill og þjáðst af kulda.
28 Auk alls þessa hef ég sífelldar áhyggjur af því hvernig söfnuðunum líður. 29 Hver gerir mistök án þess að ég verði hryggur? Hver fellur án þess að ég hafi áhuga á að reisa hann á fætur?
30 Ef ég á annað borð verð að hrósa mér, þá vil ég heldur hrósa mér af veikleika mínum.