Pular para o conteúdo
Publicidade

II. Korintubréf 12:1-10

Kraftur Guðs í veikleikanum

1 Allt slíkt sjálfshól er heimskulegt, en leyfið mér þó að halda aðeins áfram. Leyfið mér að segja ykkur frá opinberunum þeim sem Drottinn hefur gefið mér.

2,3 Fyrir fjórtán árum var ég hrifinn upp til himna. Spyrjið mig ekki hvort líkami minn var með í för eða aðeins andi minn, það hef ég ekki hugmynd um, það veit Guð einn. Hvað sem því líður, þá var ég þarna í Paradís og heyrði margt undarlegt, 4 sem ekki er í mannlegu valdi að lýsa (og þar að auki er mér óheimilt að segja það öðrum). 5 Það er hægt að stæra sig af slíkri reynslu, en það ætla ég ekki að gera. Það eina sem ég ætla að hrósa mér af er vanmáttur minn og hve Guð er mikill að geta notað vanmátt minn sér til dýrðar. 6 Ég get hrósað mér af ýmsu, og slíkt væri engin firra, en ég vil ekki að neinn geri sér hærri hugmyndir um mig en þær sem hann fær við að sjá mig og heyra.

7 Nú ætla ég að segja ykkur nokkuð: Ég hef fengið að reyna margt stórmerkilegt og því óttaðist Guð að ég yrði stoltur. Hann lagði því á líkama minn nokkuð sem stingur líkt og þyrnir. Þetta er sendiboði Satans og veldur hann mér sársauka og óþægindum og kveður þannig niður stolt mitt. 8 Þrisvar hef ég beðið Guð að taka þetta burt, 9 en í hvert sinn hefur hann svarað: „Nei, náð mín nægir þér." Nú gleðst ég yfir því hve vanmegna ég er og að ég skuli fá að vera lifandi vitnisburður um kraft Krists, og þurfi ekki að treysta á mátt minn og megin. 10 Ég veit að þetta er vilji Krists og því felli ég mig vel við „þyrninn" og sömuleiðis óþægindi, mannraunir, ofsóknir og erfiðleika. Þegar ég er vanmegna, þá er ég sterkur. Því minna sem ég hef, því meira gefur Kristur mér.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.