Publicidade

2 Coríntios 12

Kraftur Guðs í veikleikanum

1 Allt slíkt sjálfshól er heimskulegt, en leyfið mér þó halda aðeins áfram. Leyfið mér segja ykkur frá opinberunum þeim sem Drottinn hefur gefið mér.

2,3 Fyrir fjórtán árum var ég hrifinn upp til himna. Spyrjið mig ekki hvort líkami minn var með í för eða aðeins andi minn, það hef ég ekki hugmynd um, það veit Guð einn. Hvað sem því líður, þá var ég þarna í Paradís og heyrði margt undarlegt, 4 sem ekki er í mannlegu valdi lýsa (og þar auki er mér óheimilt segja það öðrum). 5 Það er hægt stæra sig af slíkri reynslu, en það ætla ég ekki gera. Það eina sem ég ætla hrósa mér af er vanmáttur minn og hve Guð er mikill geta notað vanmátt minn sér til dýrðar. 6 Ég get hrósað mér af ýmsu, og slíkt væri engin firra, en ég vil ekki neinn geri sér hærri hugmyndir um mig en þær sem hann fær við sjá mig og heyra.

7 ætla ég segja ykkur nokkuð: Ég hef fengið reyna margt stórmerkilegt og því óttaðist Guð ég yrði stoltur. Hann lagði því á líkama minn nokkuð sem stingur líkt og þyrnir. Þetta er sendiboði Satans og veldur hann mér sársauka og óþægindum og kveður þannig niður stolt mitt. 8 Þrisvar hef ég beðið Guð taka þetta burt, 9 en í hvert sinn hefur hann svarað: Nei, náð mín nægir þér." gleðst ég yfir því hve vanmegna ég er og ég skuli vera lifandi vitnisburður um kraft Krists, og þurfi ekki treysta á mátt minn og megin. 10 Ég veit þetta er vilji Krists og því felli ég mig vel við þyrninn" og sömuleiðis óþægindi, mannraunir, ofsóknir og erfiðleika. Þegar ég er vanmegna, þá er ég sterkur. Því minna sem ég hef, því meira gefur Kristur mér.

11 Ykkar vegna hef ég hegðað mér eins og kjáni með öllum þessum hrósyrðum. Þið hefðuð átt skrifa um mig, en ekki láta mig sjálfan þurfa gera það. Í engu stóð ég hinum miklu postulum baki, jafnvel þótt ég ekki neitt. 12 Þegar ég var hjá ykkur þá sannaði ég, svo ekki varð um villst, ég var ósvikinn postuli, sendur til ykkar af Guði sjálfum. Ég sýndi ykkur þolinmæði og gerði mörg tákn, undur og kraftaverk á meðal ykkar. 13 Það eina sem ég lét ógert var íþyngja ykkur. Ég bað hvorki um mat húsaskjól. bið ég ykkur fyrirgefa mér, því þarna urðu mér á mistök!

kem ég til ykkar á

14 er ég á leið til ykkar í þriðja sinn og enn ykkur kostnaðarlausu, því ekki þrái ég peningana ykkar, heldur ykkur sjálf. Þið eruð reyndar börnin mín og börn sjá ekki fyrir foreldrum sínum, heldur öfugt. 15 Mér er gleðiefni gefa ykkur sjálfan mig og allt sem ég á, ykkur til andlegra framfara, enda þótt svo virðist því heitar sem ég elska ykkur, því minna elskið þið mig.

16 Sum ykkar segja: Satt er það, svo virtist sem heimsókn hans hafi ekki kostað okkur neitt, en þessi Páll er slóttugur náungi. Hann gabbaði okkur. Það er engum blöðum um það fletta, hann hlýtur hafa grætt á okkur á einhvern hátt."

17 En hvernig? Hef ég notað einhvern þeirra, sem ég hef sent til ykkar, til hagnast á ykkur? 18 Var það gert í auðgunarskyni hvetja Títus til heimsækja ykkur ásamt hinum bróðurnum? Nei, auðvitað ekki. Við framgengum allir í Guðs anda og fórum allir eins .

19 Þið haldið, með þessum orðum séum við verja okkur gagnvart ykkur. Svo er ekki. Ég segi ykkur satt, og Guð er vitni því, orð mín hafa öll verið sögð ykkur til hjálpar, kæru vinir. Ég hef viljað efla ykkur andlega, en ekki maka minn eigin krók. 20 Þegar ég kem til ykkar, óttast ég mér líki ekki það sem ég og ykkur mislíki það sem ég verð gera. Ég býst við ég muni finna ykkur ósátt, full öfundar, reiði, hroka og talandi illa hvert um annað. , ég óttast þið séuð stolt og breiðið út óhróður um náungann. 21 Ég býst við Guð muni auðmýkja mig frammi fyrir ykkur og ég muni fyllast hryggð vegna þess hve mörg ykkar hafa syndgað. Þið hafið vanið ykkur á syndina og finnst allt í lagi vera ánetjuð siðleysi og girnd og halda framhjá mökum ykkar.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-