Pular para o conteúdo
Publicidade

2 Coríntios 13

1 Þetta er í þriðja sinn sem ég kem til ykkar. Biblían segir hafi tveir eða þrír orðið vitni rangindum, þá beri refsa. þegar ég kem vara ég ykkur við í þriðja sinn. 2 Ég hef þegar varað þá við sem syndguðu, það gerði ég síðast þegar ég var hjá ykkur. vara ég þá aftur við og alla hina eins og ég gerði þá. Ég segi ykkur hér með þegar ég kem þá verð ég undir það búinn refsa þeim harðlega og án undanbragða.

3 Ef þið viljið, þá mun ég sanna á fullnægjandi hátt ég tala fyrir munn Krists. Kristur er ekki máttlaus þegar hann fer höndum um ykkur, nei, hann er sterkt afl hið innra með ykkur. 4 Vanmegna, kvalinn og hrjáður hann á krossinum, en lifir hann fyrir kraft Guðs. Eins og hann var, erum við líkamlega veikburða, en lifum þó eins og hann í styrkleika. Við höfum aðgang krafti Guðs og þann kraft munum við nota ykkar á meðal.

Prófið sjálf ykkur

5 Prófið ykkur sjálf. Eruð þið trúuð þegar allt kemur til alls? Munuð þið standast prófið? Finnið þið fyrir nálægð Krists? Vex máttur hans í ykkur? Eða eruð þið kannski aðeins kristin nafninu til? 6 Ég vona þið séuð mér sammála um ég hafi staðist prófið og tilheyri Drottni, svo ekki verði um villst.

7 Ég bið til Guðs þið lifið sómasamlegu lífi, en ekki til þess þið verðið skrautfjöður í hatt okkar, sem sanni kenningu okkar. Við viljum þið gerið það sem rétt er og jafnvel þótt við sjálfir verðum fyrirlitnir. 8 Okkar hlutverk er hvetja ávallt til þess sem rétt er, því hvernig færi fyrir okkur ef við ættum standa gegn sannleikanum? 9 Við gleðjumst þótt við séum veikburða, bara ef þið verðið styrk. Okkar hjartans bæn og þrá er þið verðið fullþroska í trúnni.

10 Þetta skrifa ég í þeirri von ég þurfi ekki ávíta ykkur eða refsa, þegar ég kem, því ekki langar mig til nota það vald sem Drottinn hefur gefið mér til refsa, heldur það vald sem ætlað er til uppbyggingar hinum trúuðu.

11 Ég lýk bréfi mínu með þessum orðum: Verið glöð og vaxið í Kristi. Farið eftir orðum mínum og lifið í sátt og samlyndi. Friður Guðs og kærleikur með ykkur.

12 Heilsið hvert öðru með hlýju og kærleika Drottins. 13 Trúsystkini ykkar hér senda sínar bestu kveðjur. 14 Friður Drottins Jesú Krists, kærleikur Guðs og samfélag heilags anda eflist ykkar á meðal.

Páll

Veja também