Pular para o conteúdo
Publicidade

II. Korintubréf 2:14-17

14 Þökk sé Guði fyrir sigur hans í Kristi og að hann skuli hafa leyft okkur að taka þátt í sigurgöngu hans, og segja öðrum frá honum. Boðskapurinn um hann berst eins og sætur reykelsisilmur út um allan heiminn. 15 Við erum eins og góðilmur reykelsis, sem Kristur brennir frammi fyrir Guði og berst ilmur þess jafnt til frelsaðra og ófrelsaðra. 16 Hinir ófrelsuðu skelfast, því að þeim finnst ilmurinn minna á dauða og dóm, en okkur hinum frelsuðu er hann ilmur lífsins. Hverjir eru hæfir til að boða fagnaðarerindið? 17 Við erum ekki eins og þeir sem predika Guðs orð launanna vegna, heldur tölum við af einlægni hjartans það sem Guð vill að við segjum, af því að við erum þjónar Krists og störfum fyrir augliti Guðs.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.