Publicidade

2 Coríntios 3

Trú ykkar vitnar um verk ykkar

1 Erum við orðnir eins og falskennendur sem eru alltaf tala um sjálfa sig, og hafa með sér löng meðmælabréf? Ég held þið þarfnist þess ekki neinn skrifi ykkur bréf um líferni okkar eða hvað? Við þurfum ekki heldur meðmælabréf frá ykkur. 2 Eina bréfið sem ég þarf, eruð þið sjálf. Ef fólk skoðar þá góðu breytingu sem orðið hefur á ykkur, þá sér það við höfum unnið gott verk á meðal ykkar. 3 Menn sjá ljóslega þið eruð eins og bréf frá Kristi, skrifað af okkur. Það er ekki skrifað með penna og bleki, heldur með anda hins lifandi Guðs. Ekki er það höggvið í stein, heldur í hjörtu manna.

4 Við þorum tala svona vel um okkur sjálf vegna þess við treystum því Guð hafi velþóknun á okkur, vegna trúar okkar á Krist. Við treystum því hann hjálpi okkur standa við orð okkar. 5 Við álítum okkur sjálfa, í eigin mætti, ekki færa um gera neitt það sem hefur varanlegt gildi. Allur árangur okkar og máttur er Guði einum þakka. 6 Hann einn hefur gert okkur kleift kunngjöra fagnaðarerindið nýja sáttmálann sem hann gaf mönnunum til frelsis. Við erum ekki boða lögmál Gyðinga, heldur líf í heilögum anda. Gamla leiðin reyna frelsast með því halda lög Gyðinga endar með dauða, en ef við förum nýju leiðina, þá gefur andi Guðs okkur hið sanna líf.

Hin nýja dýrð dýrð Krists

7 Gamli sáttmálinn þetta gamla lagakerfi sem leiddi til dauða byrjaði í slíkri dýrð fólk þoldi ekki horfa framan í Móse þegar hann færði því lög Guðs, því andlit hans ljómaði af dýrð Guðs. Samt fölnaði ljómi brátt. 8 Eigum við þá ekki vænta meiri dýrðar þegar heilagur andi hefur sjálfur gefið okkur lífið? 9 Fyrst ráðstöfunin sem leiddi til dóms var dýrleg, þá hlýtur hin ráðstöfunin vera mun dýrlegri, sem helgar mennina í augum Guðs. 10 Staðreyndin er í samanburði við yfirgnæfandi dýrð nýja sáttmálans, þá er hin fyrri dýrð, sem skein af andliti Móse, einskis virði. 11 Og fyrst það, sem varaði aðeins skamma stund, ljómaði af himneskri dýrð, mun þá ekki hin nýja áætlun Guðs um hjálpræði mannanna vera miklu stórfenglegri, því hún varir eilífu!

12 Fyrst við treystum því þessi nýja dýrð muni aldrei hverfa, þá getum við predikað með mikilli djörfung. 13 Þá gerum við ekki eins og Móse, sem setti blæju fyrir andlit sér til Ísraelsmenn gætu ekki séð hvernig ljóminn hvarf smátt og smátt. 14 Andlit Móse var ekki aðeins hulið, heldur var einnig hugur og skilningur fólksins blindaður. Þannig er það jafnvel enn þegar Gyðingar lesa Gamla testamentið. Þá virðist sem hugur þeirra og hjarta hulið þykkri blæju, enda koma þeir hvorki auga á skilja hið raunverulega innihald textans. Eina leiðin til fjarlægja þessa blæju skilningsleysis, er þeir taki trú á Krist. 15 Þess vegna er svo enn í dag þegar þeir lesa rit Móse, þá eru hjörtu þeirra blind og þeir trúa leiðin til hjálpræðis hlýða lögmálinu.

16 Í hvert skipti sem einhver snýr sér frá syndum sínum og til Drottins, er þessi blæja tekin frá. 17 Drottinn er andinn sem gefur þeim líf, og þar sem hann er, þar er frelsi (frá þeirri kvöð þurfa hlýða lögmálinu í einu og öllu til þess geta þóknast Guði). 18 Við sem kristin erum höfum enga blæju fyrir andlitum okkar. Við getum verið eins og speglar sem endurvarpa dýrð Drottins og þegar andi hans starfar í okkur, þá líkjumst við honum sífellt meira.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-