17 Erfiðleikar okkar eru smámunir einir, sem vara munu stuttan tíma. Þessir skammvinnu erfiðleikar leiða þó ríkulega blessun Guðs yfir líf okkar – blessun sem vara mun til eilífðar! 18 Þess vegna horfum við ekki á það sem við sjáum þessa stundina, erfiðleikana sem eru allt í kring um okkur, heldur fram til þeirrar gleði á himnum sem við munum sjá. Þrengingarnar eru skammvinnar en fögnuðurinn, sem í vændum er, mun aldrei taka enda.