6 Nú horfum við glöð fram til þess tíma er við fáum þessa himnesku líkama okkar. En minnumst þess jafnframt að hvert andartak, sem við lifum í jarðnesku líkömunum, er tími sem við eyðum fjarri okkar eilífa heimili á himnum hjá Jesú. 7 Þetta sjáum við ekki með líkamlegum augum, heldur með augum trúarinnar. 8 Við erum alls óhrædd við dauðann, því að þá fáum við að fara heim til Drottins. 9 Markmið okkar er því ávallt að þóknast honum í öllu sem við gerum, hvort sem það er í líkamanum, á jörðu, eða á himnum hjá Drottni.
Publicidade