Forðist alla málamiðlun
14 Forðist félagsskap við þá sem ekki elska Drottin, því hvað eiga börn Guðs sameiginlegt með börnum syndarinnar? Hvernig er hægt að sameina ljós og myrkur? 15 Hvað á Kristur saman við Satan að sælda? Hvernig getur kristinn maður átt samfélag við þann sem ekki trúir? 16 Getur nokkurt samband verið milli musteris Guðs og skurðgoðanna? Þið eruð musteri Guðs, bústaður hins lifandi Guðs, og um ykkur segir hann: „Ég vil búa hjá þeim og ganga um meðal þeirra. Ég mun vera þeirra Guð og þeir munu vera mitt fólk." 17 Af þessari ástæðu segir Drottinn: „Yfirgefið þá! Farið burt frá þeim. Snertið ekkert óhreint og þá mun ég taka ykkur með mér.