4 Látum það sjást að við séum sannir þjónar Guðs í öllu sem við gerum. Þolinmæði okkar stendur af sér allar þjáningar, þrengingar og erfiðleika. 5 Við höfum verið barðir, okkur hefur verið stungið í fangelsi og oft höfum við horfst í augu við trylltan múg. Við höfum unnið meðan kraftar entust, vakað margar nætur og liðið hungur. 6 Við höfum staðið við orð okkar og lifað heilbrigðu lífi. Þessu hefur þrautseigja og skilningur okkar á fagnaðarerindinu komið til leiðar. Við höfum iðkað góðsemi og sannan kærleika og verið leiddir af heilögum anda. 7 Við höfum talað sannleikann og máttur Guðs hefur hjálpað okkur í öllu sem við höfum gert. Við höfum íklæðst herklæðum hins kristna manns – og notað vopnin til sóknar og varnar. 8 Við höfum verið Drottni trúir, hvort sem aðrir heiðra okkur eða forsmá, lasta eða lofa. Við erum heiðarlegir, þótt þeir kalli okkur lygara. 9 Heimurinn lætur sér fátt um okkur finnast, en Guð þekkir okkur. Við erum í stöðugri lífshættu, en þó lifum við enn. Við höfum hlotið sár, en þó haldið lífi. 10 Við erum hryggir, en þó alltaf glaðir í Drottni. Við erum fátækir, en auðgum þó marga með andlegum gjöfum. Við erum allslausir, en eigum þó allt.