Publicidade

2 Coríntios 8

1 langar mig segja ykkur frá því sem Guð hefur gert af náð sinni fyrir söfnuðina í Makedóníu. 2 Enda þótt hinir kristnu þar hafi reynt mikla erfiðleika og þrengingar, þá hafa þeir haldið gleði sinni mitt í allri fátæktinni. Þetta hefur vakið hjá þeim mikla umhyggju fyrir þörfum annarra. 3 Þeir hafa gefið ríkulega reyndar miklu meira en þeir höfðu efni á. Ég get staðfest hér, þetta gerðu þeir af fúsum vilja. 4 Þeir báðu okkur fyrir þessa peninga, því þeir vildu einnig vera með í því hjálpa hinum kristnu í Jerúsalem. 5 Það besta var þetta fór langt fram úr okkar vonum, því það fyrsta sem þeir gerðu var fórna sér algjörlega fyrir Drottin og síðan fyrir okkur, samkvæmt vilja Guðs. 6 Þeir voru svo áhugasamir um þetta höfum við hvatt Títus, hann sem hóf verkið, til heimsækja ykkur og biðja ykkur bæta við því sem á vantar í þessa kærleiksgjöf. 7 Kæru vinir, þið hafið forystu í mörgu: Þið hafið mikla trú, marga góða predikara, mikla fræðslu, mikinn áhuga og mikinn kærleika til okkar. langar mig einnig til þið hafið forystu í því gefa, og það með gleði. 8 Ég er ekki skipa fyrir. Ég er ekki segja þið verðið gera þetta, heldur er ég prófa kærleika ykkar með samanburði við dugnað annarra. Þetta gefur ykkur tækifæri til sanna kærleika ykkar í verki og sýna hann ekki aðeins orðin tóm. 9 Því þið þekkið kærleika Drottins Jesú Krists: Þótt hann væri ríkur, þá gerðist hann fátækur ykkar vegna svo þið auðguðust af fátækt hans.

10 Mig langar leggja til þið ljúkið því sem þið byrjuðuð á í fyrra. Reyndar var þetta ekki ykkar hugmynd, en þið voruð fyrst til gera eitthvað í málinu. 11 Þið komuð þessu af stað og ættuð því hafa mikinn áhuga á koma því í höfn, með því gefa eins og efni standa til. 12 Ef þið hafið áhuga á gefa, þá skiptir ekki öllu máli hve mikið þið gefið. Guð vill þið gefið af því sem þið eigið, en ekki af því sem ekki er til. 13 Auðvitað á ég ekki við þeir sem gjafir ykkar eigi hafa það náðugt, á ykkar kostnað, en við skulum stuðla jöfnuði. sem stendur hafið þið nóg af öllu og ættuð því geta rétt þeim hjálparhönd. 14 Síðar meir geta þeir svo aðstoðað ykkur á sama hátt þegar þið hafið þörf fyrir hjálp. Á þennan hátt geta báðir haft nóg. 15 Munið þið hvað Biblían segir um þetta? Hún segir: sem miklu safnaði, átti ekkert afgangs, en sem litlu safnaði, hafði nóg." Af þessari ástæðu ættuð þið einnig veita þeim hjálp sem hjálpar eru þurfi.

16 Ég þakka Guði sem vakti hjá Títusi sömu umhyggju fyrir ykkur og hann hefur gefið mér. 17 Samkvæmt uppástungu minni vill hann fúslega fara til ykkar á ég held reyndar hann hefði gert það hvort sem var, því hann hefur mikinn áhuga á hitta ykkur. 18 Ég mun einnig senda annan vel þekktan bróður með honum. maður er rómaður af öllum söfnuðunum sem góður boðberi fagnaðarerindisins. 19 Sannleikurinn er söfnuðirnir kusu hann til verða mér samferða og fara með gjöfina til Jerúsalem. Þetta mun verða Drottni til dýrðar og jafnframt sýna löngun okkar til hjálpa hvert öðru. 20 Með því hafa samflot, verjumst við allri tortryggni annarra. Okkur er nefnilega mjög umhugað um enginn geti fundið neitt ámælisvert við vinnubrögð okkar varðandi þessa miklu gjöf. 21 Guð veit við erum heiðarlegir, en ég vil einnig aðrir viti það og því höfum við unnið þessu á þennan hátt.

22 Ég sendi þar auki enn einn bróður til ykkar. Af eigin reynslu vitum við hann er einlægur maður og eftir ég sagði honum frá löngun ykkar til veita hjálp, þá hlakkar hann mjög til ferðarinnar.

23 Ef einhver spyr hver Títus , segið þá hann samstarfsmaður minn, sem aðstoði ykkur við hjálpa öðrum. Auk þess getið þið sagt hinir tveir bræðurnir séu fulltrúar kirkjunnar hér og séu báðir til fyrirmyndar í trúnni á Drottin. 24 Sýnið þessum mönnum kærleika og látið söfnuðina sjá það var ekki ástæðulausu sem ég hrósaði ykkur.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-