Pular para o conteúdo
Publicidade

II. Pétursbréf 3:16,17

15,16 Munið hvers vegna hann bíður. Hann gerir það til þess að við getum flutt hjálpræðisboðskap hans út til allra manna. Páll, hinn elskaði og skynsami bróðir okkar, hefur rætt um þetta í mörgum bréfa sinna. Sumt af því sem hann segir er torskilið, og til eru menn, sem af ásettu ráði hegða sér heimskulega og vilja snúa út úr því sem hann segir. Þeir hafa mistúlkað bréf hans svo hrapallega að þau fá allt aðra merkingu en til var ætlast og þannig fara þeir með margt annað í Biblíunni. Afleiðingin er sú að þeir leiða tortímingu yfir sjálfa sig.

17 Kæru vinir, ég vara ykkur við í tíma, svo að þið fylgist vel með öllu og látið ekki leiðast afvega af mistökum þessara vondu manna, því að þá gætuð þið sjálf orðið eins og þeir.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

2 Pedro
Ver todos os capítulos de 2 Pedro