3 Í fyrsta lagi vil ég minna ykkur á að á síðustu tímum munu koma fram lastmælendur, sem reyna að valda öllu því tjóni sem þeir geta, og hæðast að sannleikanum. 4 Röksemdir þeirra verða á þessa leið: „Jesús lofaði að koma aftur, ekki satt? En hvað er orðið af honum? Ha? Hann mun aldrei koma! Eins langt og menn muna stendur allt við það sama, allt frá því að heimurinn varð til."
5,6 Viljandi gleyma þeir því að Guð eyddi jörðinni í gífurlegu flóði, löngu eftir að hann hafði skapað heiminn með orði sínu – eftir að hann hafði notað vatnið til að mynda jörðina og umlykja hana. 7 Guð hefur sagt að himinn og jörð skuli bíða eldsins á degi dómsins og þá muni allir óguðlegir menn farast.