8 En gleymið því nú ekki, kæru vinir, að í augum Drottins er einn dagur jafn langur og þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur. 9 Hann er því alls ekki seinn að efna loforðið um endurkomu sína, jafnvel þótt sumum virðist svo. Það veldur bið hans að hann vill ekki að neinir glatist og því gefur hann syndurunum enn frest til að iðrast.
10 Dagur Drottins mun vissulega koma. Hann mun koma óvænt, líkt og þjófur, og þá munu himnarnir líða undir lok með miklum gný og frumefni alheimsins brenna upp í eldi. Þá mun jörðin eyðast og allt sem á henni er.
11 Skyldum við ekki þurfa að lifa heilögu og guðrækilegu lífi, fyrst allt umhverfis okkur leysist upp á þennan hátt? 12 Horfið fram til þess dags með eftirvæntingu og flýtið fyrir honum, deginum er Guð lætur himnana brenna, frumefnin bráðna og leysast upp í logum. 13 Samkvæmt loforði Guðs væntum við nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem allt er í samræmi við vilja Guðs.