Hættur framundan
1 Eitt er það enn sem þér er nauðsynlegt að vita, Tímóteus, á hinum síðustu dögum verður mjög erfitt að vera kristinn. 2 Þá munu menn verða sjálfselskir og ágjarnir. Þeir verða stoltir og hrokafullir, fyrirlíta Guð og verða foreldrum sínum óhlýðnir og vanþakklátir. Illskan mun vaxa á flestum sviðum. 3 Menn verða miskunnarlausir og ófúsir að vægja. Þeim verður eðlilegt að ljúga og sýna ýmiskonar yfirgang. Menn kæra sig kollótta um gott siðferði en verða óheflaðir og grimmir, og fyrirlíta það sem gott er.