Publicidade

3 João 1

1 Frá Jóhannesi öldungnum.

Til míns kæra Gajusar, sem ég elska í sannleika.

2 Kæri vinur, það er bæn mín þér líði vel, þú sért jafn hraustur líkamlega og þú ert andlega. 3 Sumir bræðranna, sem komu hér við, glöddu mig stórlega þegar þeir sögðu mér þú lifðir hreinu og góðu lífi eftir orði Guðs. 4 Það er ekkert sem gleður mig jafnmikið og slíkar fréttir af börnum mínum.

Farðu eftir því sem gott er

5 Kæri vinur, þú vinnur Guði gott verk með því sjá fyrir kennurum þeim og kristniboðum, sem leið eiga um hjá þér. 6 Þeir hafa sagt söfnuðinum frá hlýhug þínum og kærleiksverkum. Það gleður mig þú skulir leysa þá út með gjöfum, 7 því Drottins vegna ferðast þeir um og þiggja hvorki mat, föt, húsaskjól peninga af heiðingjunum, enda þótt þeir hafi flutt þeim Guðs orð. 8 Af þessari ástæðu ber okkur annast þá og með því verðum við samstarfsmenn þeirra í verki Drottins.

9 Ég sendi söfnuðinum stutt bréf um þessa hluti, en hinn stolti Díótrefes, sem sækist eftir verða leiðtogi kristinna manna þar, viðurkennir ekki vald mitt og neitar hlusta á mig. 10 Þegar ég kem mun ég segja þér hvað hann hefur gert, hvernig hann rægir mig og einnig hvers konar orðbragð hann notar. Það er ekki aðeins hann neiti sjálfur taka á móti kristniboðunum, sem þar fara um, heldur bannar hann líka öðrum gera það og hlýði þeir ekki, reynir hann reka þá úr söfnuðinum.

11 Kæri vinur, láttu þetta illa fordæmi ekki hafa áhrif á þig, heldur fylgdu því einu sem gott er.

Mundu þeir, sem gera rétt, sanna með því þeir séu Guðs börn, en hinir, sem leggja stund á hið illa, sýna þeir þekkja ekki Guð.

12 Demetríus fær hins vegar gott orð hjá öllum og einnig hjá sjálfum sannleikanum. Sama segi ég, og þú veist ég fer með rétt mál.

13 Það er margt sem ég þyrfti segja þér, en um þá hluti vil ég ekki skrifa, 14 því ég vona ég muni sjá þig fljótlega og þá getum við rætt saman. 15 Ég kveð þig hér með í þetta sinn. Vinirnir, sem hér eru, biðja kærlega heilsa þér. Skilaðu sérstakri kveðju frá mér til allra vinanna, hvers um sig.

Jóhannes

Veja também

Publicidade
3 João
Ver todos os capítulos de 3 João
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-