5 og frá Jesú Kristi, hinum trúa votti sannleikans. Hann var sá fyrsti sem reis upp frá dauðum, og hann mun aldrei deyja í annað sinn. Hann er æðri öllum konungum jarðarinnar. Dýrð sé honum! Hann elskar okkur og úthellti blóði sínu til að frelsa okkur frá syndinni. 6 Hann hefur safnað okkur saman inn í ríki sitt og gert okkur að prestum Guðs, föður síns. Lofið hann og gefið honum dýrðina – alla dýrðina! Hann mun ríkja að eilífu! Amen.