Nýr söngur
1 Eftir þetta sá ég lamb sem stóð á Síonfjalli í Jerúsalem og með því voru 144 þúsundir, sem höfðu nafn þess og föður þess skrifuð á enni sér. 2 Ég heyrði hljóð frá himnum, líkast miklum fossdrunum eða þrumum – þetta var kór sem söng við undirleik á hörpu.
3 Þessi stórkostlegi kór – en hann var 144.000 raddir – söng nýjan og dásamlegan söng frammi fyrir hásæti Guðs og frammi fyrir öldungunum tuttugu og fjórum. Enginn gat sungið þennan söng nema þessar 144 þúsundir, sem keyptar höfðu verið burt af jörðinni. 4 Fólk þetta er endurleyst úr hópi mannanna og það er án syndar, sem hreinar meyjar. Það fylgir lambinu hvert sem það fer. Það er sem fórn, helguð Guði og lambinu, 5 og hjá því er enga lygi að finna, það er gallalaust.