Skarlatsklædda konan
1 Þá kom til mín einn af englunum sjö, sem leitt hafði plágurnar yfir jörðina, og sagði: „Komdu með mér, ég ætla að sýna þér afdrif skækjunnar miklu sem situr uppi yfir vötnum heimsins – þjóðunum. 2 Konungar jarðarinnar hafa drýgt hór með henni og þjóðir heimsins hafa orðið drukknar af ólifnaðarvíni hennar."
3 Engillinn fór nú með mig í anda út í eyðimörkina. Þar sá ég konu sitja á skarlatsrauðu dýri. Dýrið hafði sjö höfuð og tíu horn og voru hornin alskrifuð formælingum um Guð. 4 Föt konunnar voru purpuri og skarlat og hún bar skartgripi úr gulli, gimsteinum og perlum. Í hendinni hafði hún gullbikar, fullan af viðbjóði.