Konungur konunganna
11 Síðan sá ég himininn opinn og hvítan hest standa þar. Sá sem á hestinum sat heitir „trúr og sannur" og hann berst og refsar með réttvísi. 12 Augu hans eru sem eldslogar og á höfðinu ber hann margar kórónur. Nafn er á enni hans, en hann einn veit merkingu þess. 13 Föt hans eru blóði drifin og hann er nefndur „orð Guðs". 14 Hersveitir himnanna fylgdu honum á hvítum hestum, en þær voru klæddar dýru líni, hvítu og hreinu.
15 Í munni sínum hefur hann beitt sverð til þess að höggva þjóðirnar með og hann stjórnar þeim með járnaga. Hann treður og pressar vínþrúgurnar í þró, sem kallast „heiftarreiði Guðs hins útvalda". 16 Á skikkju hans og mitti er skrifað nafn: KONUNGUR KONUNGA OG DROTTINN DROTTNA.