Pular para o conteúdo
Publicidade

Opinberun Jóhannesar 19

Konungur konunganna

11 Síðan ég himininn opinn og hvítan hest standa þar. sem á hestinum sat heitir trúr og sannur" og hann berst og refsar með réttvísi. 12 Augu hans eru sem eldslogar og á höfðinu ber hann margar kórónur. Nafn er á enni hans, en hann einn veit merkingu þess. 13 Föt hans eru blóði drifin og hann er nefndur orð Guðs". 14 Hersveitir himnanna fylgdu honum á hvítum hestum, en þær voru klæddar dýru líni, hvítu og hreinu.

15 Í munni sínum hefur hann beitt sverð til þess höggva þjóðirnar með og hann stjórnar þeim með járnaga. Hann treður og pressar vínþrúgurnar í þró, sem kallast heiftarreiði Guðs hins útvalda". 16 Á skikkju hans og mitti er skrifað nafn: KONUNGUR KONUNGA OG DROTTINN DROTTNA.

17 Þá ég engil sem stóð á sólinni. Hann kallaði hárri röddu til fuglanna: Komið! Komið hingað til kvöldmáltíðar hins mikla Guðs! 18 Komið og etið hold konunga, kappa og háttsettra hershöfðingja, hesta og knapa þeirra og allra manna, bæði hárra og lágra, frjálsra og ánauðugra."

19 Eftir það ég dýrið, hið illa, safnaði saman valdamönnum heimsins og herjum þeirra til stríðs gegn honum, sem á hestinum sat, og hersveitum hans. 20 Og dýrið var handtekið ásamt falsspámanninum, þeim sem gat gert mikil kraftaverk, ef dýrið var viðstatt kraftaverk sem blekktu þá sem höfðu látið setja á sig merki dýrsins og tilbáðu líkneski þess. Þeim báðum dýrinu og falsspámanninum var fleygt lifandi í eldsdíkið, sem kraumar af logandi brennisteini. 21 Herir þeirra voru stráfelldir með beitta sverðinu sem gekk út af munni þess, sem sat á hvíta hestinum, og fuglar himinsins átu sig sadda af hræjum þeirra.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também