Pular para o conteúdo
Publicidade

Opinberun Jóhannesar 20

Djöfullinn fangelsaður

1 Eftir þetta ég engil koma frá himni og hélt hann á lykli sem gekk undirdjúpunum. Auk þess hafði hann meðferðis þunga hlekki. 2,3 Hann greip drekann, gamla höggorminn, djöfulinn, Satan hlekkjaði hann og fleygði honum í botnlausa hyldýpið. Síðan lokaði hann því og læsti og þar varð Satan dúsa í þúsund ár. Þetta gerði engillinn til þess Satan gæti ekki leitt þjóðirnar afvega fyrr en þessum þúsund árum liðnum, en þá átti láta hann lausan í stuttan tíma.

4 Eftir þetta ég hásæti, sem í sátu einhverjir er fengið höfðu vald til dæma. Ég sálir þeirra sem líflátnir höfðu verið fyrir vitna um Jesú og predika Guðs orð. Þeir höfðu hvorki tilbeðið dýrið líkneski þess heldur fengið merki þess á enni sín eða hendur. Þessir höfðu vaknað aftur til lífsins og ríktu þeir með Kristi í þúsund ár.

5 Þetta er fyrri upprisan. Aðrir dauðir lifnuðu ekki fyrr en þúsund árin voru á enda. 6 Blessaðir og heilagir eru þeir, sem hlut eiga í fyrri upprisunni, því hinn annar dauði hefur ekkert vald yfir þeim. Þeir munu verða prestar Guðs og Krists og ríkja með honum í þúsund ár.

7 þúsund árum liðnum mun Satan verða leystur úr haldi. 8 Þá mun hann fara af stað til leiða þjóðirnar afvega um alla jörðina og stefna þeim saman, ásamt Gog og Magog, til stríðs. 9 Mikill grúi mun safnast saman á sléttunni miklu og umkringja fólk Guðs og Jerúsalem, borgina elskuðu. En Guð mun láta eld falla af himni yfir árásarliðið og eyða því.

10 Þá mun djöflinum, honum sem leiddi þjóðirnar afvega, aftur verða fleygt í díkið, sem logar af eldi og brennisteini, þar sem bæði dýrið er og falsspámaðurinn og þessir munu kveljast dag og nótt um alla eilífð.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também