Nýr himinn og ný jörð
1 Eftir þetta sá ég nýjan himin og nýja jörð. Hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og höfin voru ekki lengur til. 2 Þá sá ég, Jóhannes, borgina helgu, hina nýju Jerúsalem! Hún kom niður af himninum frá Guði. Þetta var dýrleg sjón! Borgin var fögur eins og brúður á brúðkaupsdegi.
3 Þá heyrði ég kallað hárri röddu frá hásætinu: „Sjá! Bústaður Guðs er meðal mannanna. Hann mun búa hjá þeim og þeir munu verða fólk hans – Guð mun sjálfur vera hjá þeim.