9 Þá kom einn af englunum sjö, sem tæmt höfðu skálarnar með síðustu sjö plágunum, og sagði við mig: „Komdu með mér og ég skal sýna þér brúðina, eiginkonu lambsins."
Borgin dýrlega
10 Ég sá í sýninni að hann fór með mig upp á hátt fjall og þaðan sá ég borgina dýrlegu, hina heilögu Jerúsalem, koma niður af himni frá Guði. 11 Hún var full af dýrð Guðs og glóði eins og gimsteinn. Það glampaði á hana eins og slípaðan jaspis. 12 Múrarnir voru háir og breiðir og tólf englar gættu hliðanna tólf, sem á þeim voru. Nöfn hinna tólf ættkvísla Ísraels voru rituð á hliðin. 13 Borgin hafði fjórar hliðar og voru þrír inngangar á hverri hlið, en hliðarnar sneru í norður, suður, austur og vestur. 14 Múrarnir höfðu tólf undirstöðusteina og á þá voru rituð nöfn hinna tólf postula lambsins.