Publicidade

Apocalipse 22

1 Síðan benti hann mér á fljót lífsvatnsins. Það rann silfurtært frá hásæti Guðs og lambsins 2 og niður aðalgötuna. Sitt hvoru megin við fljótið óx lífsins tré og ber það ávöxt tólf sinnum á ári, eina uppskeru í mánuði hverjum, og blöðin eru notuð til lækninga fyrir þjóðirnar.

3 Í borginni finnst ekkert illt, því að þar er hásæti Guðs og lambsins og þjónar hans munu tilbiðja hann. 4 Þeir munu sjá auglit hans og nafn hans mun vera skrifað á enni þeirra. 5 Þar verður aldrei nótt og því engin þörf fyrir lampa eða sól, því að Drottinn Guð mun lýsa þeim og þeir munu ríkja um alla eilífð.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-22_10-02-25-