1 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Sardes:
Þetta segir sá sem hefur hinn sjöfalda anda Guðs og stjörnurnar sjö.
Ég veit að fólk segir að þú sért lifandi og starfandi söfnuður, en þú ert dauður! 2 Vaknaðu! Hleyptu lífi í það litla sem eftir er – því að jafnvel það er að deyja. Verk þín eru lítils virði í augum Guðs.