Publicidade

Apocalipse 3

1 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Sardes:

Þetta segir sem hefur hinn sjöfalda anda Guðs og stjörnurnar sjö.

Ég veit fólk segir þú sért lifandi og starfandi söfnuður, en þú ert dauður! 2 Vaknaðu! Hleyptu lífi í það litla sem eftir er því jafnvel það er deyja. Verk þín eru lítils virði í augum Guðs. 3 Komdu til mín og snúðu þér aftur því sem þú heyrðir og trúðir í upphafi og haltu fast við það. Ef þú gerir það ekki, mun ég koma til þín áður en þú veist af óvænt eins og þjófurinn og refsa þér.

4 Þarna í Sardes eru samt fáeinir sem ekki hafa óhreinkað sig á heiminum, og þeir munu ganga við hlið mér í hvítum klæðum, því það eiga þeir sannarlega skilið. 5 er sigrar, mun hvít klæði og nafnið hans mun ég ekki fjarlægja úr lífsbókinni. Ég mun viðurkenna hann frammi fyrir föður mínum og englum hans. 6 Þið sem heyrið, hlustið á það sem andi Guðs segir söfnuðunum.

7 Eftirfarandi bréf skaltu senda leiðtoga safnaðarins í Fíladelfíu:

Þennan boðskap færð þú frá honum sem er heilagur og sannur. Ég hef lykil Davíðs og get opnað, svo enginn fái læst og læst get ég, svo enginn opni.

8 Ég þekki þig þú hefur lítinn mátt, en hefur þó reynt hlýðnast og ekki afneitað nafni mínu. Þess vegna hef ég opnað fyrir þér dyr sem enginn getur lokað.

9 Taktu eftir: Ég mun láta þá, sem vinna fyrir. Satan þeir segjast reyndar tilheyra mér, en það er lygi því það gera þeir ekki falla fótum þér og viðurkenna þú ert sem ég elska.

10 Þið hafið hlýtt mér, þrátt fyrir ofsóknir, og því mun ég hlífa ykkur við þeirri miklu þrengingu sem koma mun yfir heiminn en þá munu mennirnir verða reyndir. 11 Taktu eftir! Ég kem skjótt! Haltu fast því sem þú hefur, svo enginn taki kórónu þína.

12 Þann sem sigrar mun ég gera máttarstólpa í musteri Guðs míns. Þar mun hann standa eilífu og ekki haggast og á hann mun ég rita nafn Guðs míns. Hann mun tilheyra borg Guðs, hinni nýju Jerúsalem, sem kemur niður af himni frá Guði, og á hann mun verða skráð mitt nýja nafn.

13 Þið sem heyrið, hlustið á það sem andi Guðs segir söfnuðunum.

14 Þetta skaltu skrifa leiðtoga safnaðarins í Laódíkeu:

Þetta segir sem stöðugur stendur, votturinn trúi og sanni, upphafið sköpun Guðs:

15 Ég þekki þig þú ert hvorki heitur kaldur. Heldur vildi ég þú værir annað hvort, 16 en fyrst þú ert aðeins volgur, þá mun ég skyrpa þér út úr munni mínum!

17 Þú segir: Ég er ríkur. Ég á allt sem ég þarf, mig skortir ekkert." Þú veist ekki þú hefur liðið andlegt skipbrot og þú ert fátækur vesalingur, bæði blindur og nakinn.

18 En ég ráðlegg þér kaupa hreint gull af mér, gull sem er hreinsað í eldi. Það er eina leiðin fyrir þig til eignast sönn auðæfi. Ég ráðlegg þér einnig kaupa hjá mér hvít klæði, hrein og flekklaus, svo þú verðir þér ekki til skammar með nekt þinni. Þú ættir líka hjá mér smyrsl til lækna í þér augun, svo þú fáir aftur sjónina. 19 Ég aga þá sem ég elska og refsa þeim einnig þér. Vertu því skynsamur og gjörðu iðrun.

20 Taktu eftir! Ég stend fyrir utan og ber dyrum. Ef einhver heyrir til mín og opnar, mun ég fara inn til hans og setjast til borðs með honum og hann með mér. 21 Þann sem sigrar, mun ég láta sitja mér við hlið í hásæti mínu, á sama hátt og ég sigraði og settist við hlið föður míns í hásæti hans. 22 Þeir sem heyra, hlusti á það sem andi Guðs segir söfnuðunum.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-