Innsiglin rofin
1 Nú sá ég að lambið rauf fyrsta innsiglið af bókinni og opnaði hana. Þá sagði ein af verunum fjórum, og rödd hennar líktist þrumugný: „Kom þú!"
2 Ég sá hvítan hest og sá sem á honum sat hafði boga og honum var fengin kóróna. Síðan reið hann út til að vinna mikla sigra.