Guðs sanni þjónn
1 Eftir þetta sá ég fjóra engla sem stóðu á fjórum skautum jarðarinnar og héldu vindunum fjórum í skefjum, svo að þeir gátu ekki blásið. Lauf trjánna bærðust ekki og hafið varð spegilslétt. 2 Þá sá ég annan engil, hann kom úr austurátt og hélt á innsigli hins lifandi Guðs. Hann kallaði til englanna fjögurra sem fengið höfðu vald til að granda jörðinni og hafinu, og sagði: 3 „Bíðið! Skaðið hvorki jörðina, hafið né heldur trén. Gerið ekkert að svo stöddu, ekki fyrr en við höfum sett innsigli Guðs á enni þeirra sem honum þjóna."
4-8 Hve margir fengu þetta innsigli? Það fékk ég að vita, þeir voru 144.000. Hinir innsigluðu voru af öllum tólf ættkvíslum Ísraels eins og hér segir: Júda 12.000, Rúben 12.000, Gað 12.000, Asser 12.000, Naftalí 12.000, Manasse 12.000, Símeon 12.000, Leví 12.000, Íssakar 12.000, Sebúlon 12.000, Jósef 12.000 og Benjamín 12.000.