24,25 Síðan báðu þeir Guð að rétti maðurinn yrði valinn. „Ó, Drottinn," sögðu þeir, „þú þekkir hjörtu allra. Sýndu okkur, hvorn þessara manna þú hefur valið til postula í stað Júdasar, svikarans, sem nú er á sínum eigin stað."
Þá vörpuðu þeir hlutkesti og kom upp hlutur Mattíasar. Hann var þar með valinn postuli ásamt hinum ellefu.