Pular para o conteúdo
Publicidade

Postulasagan 12:5,7,10,12-16

5 Meðan Pétur var í fangelsinu var söfnuðurinn stöðugt í bæn til Guðs fyrir honum.

7 Skyndilega birti í klefanum. Engill frá Drottni var kominn og stóð hjá Pétri. Engillinn ýtti við honum, vakti hann og sagði: „Fljótur! Á fætur með þig!" Þá féllu handjárnin af Pétri.

10 Þeir gengu nú fram hjá fyrstu og síðan annarri varðsveit fangelsisins og komu að járnhliðinu við götuna, sem opnaðist af sjálfu sér! Þeir gengu út á götuna og fram með húsaröðinni, en þá hvarf engillinn.

12 Eftir stutta umhugsun ákvað hann að fara heim til Maríu, móður Jóhannesar Markúsar, en þar voru margir samankomnir til að biðja,

13 Hann barði að dyrum og fór þá stúlka, Róde að nafni, fram til að opna. 14 Þegar hún heyrði að þetta var Pétur varð hún afar glöð og hljóp aftur inn til að segja öllum að Pétur stæði fyrir utan. 15 En þau trúðu henni ekki og sögðu: „Þú ert ekki með öllum mjalla!" En hún sat föst við sinn keip. Þá sagði einhver: „Þetta hlýtur þá að vera engill hans."

16 Meðan á þessum samræðum stóð hélt Pétur áfram að berja og þegar þau fóru fram og opnuðu, urðu þau orðlaus af undrun.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.